Sálmabók
278. Kom, lát oss syngja söng
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Kom, lát oss syngja söng,
þann söng til dýrðar Drottni.
Hver morgunn miklar hann
og mátt hans elskuverka.
Hann skapar ský og haf
og skreytir sól og stjörnur
og allur heimsins her
með honum ann sér hvíldar.
Hallelúja! Hallelúja!
Syng hátt og heiðra Guð.
Hallelúja.
2 Kom, lát oss syngja sálm,
þann sálm til þakkar Drottni.
Vort ljóð skal bera boð
um blessun hans og elsku.
Nú fagni fjöll og gil
því faðir vor sem skapar,
hann býr með oss á jörð
og breytir tapi´ í sigur.
Hallelúja! Hallelúja! ...
- TCarlos Rosas, 1976 – Kristján Valur Ingólfsson 2006 – Vb. 2013Cantemos al Señor / Oh, Sing to God Above
- LCarlos Rosas, 1976 – Vb. 2013ROSAS / Cantemos al Señor / Oh, Sing to God Above
- Eldra númer 880
- Eldra númer útskýring T+L