Sálmabók

280. Við heyrum Guðs heilaga orð

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

:,: Hallelúja! Hallelúja! :,:

1 Við heyrum Guðs heilaga orð
hljóma frá upphafi vega.
Svo áfram það lifir um ókomna tíð.
Hallelúja! …

2 Við skiljum að skjól okkur veitir
skapari himins og jarðar.
Og sælt er að þekkja hans son, Jesú Krist.
Hallelúja! …

3 Við sjáum í sannleika að
sjálfur er Drottinn að verki.
Í nafni hans verður öll náttúran eitt.
Hallelúja! …

4 Við lofsyngjum lifandi Guð,
ljósið í veraldar djúpi.
Frá upphafi vega hann einn ræður för.
Hallelúja! …

  • TAðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2002 – Vb. 2013
  • LFintan O‘Carroll 1980 – Christopher Walker 1985 – Vb. 2013
    CELTIC ALLELUIA / The Word of the Lord lasts for ever
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 881
  • Eldra númer útskýring T+L