Sálmabók

299. Vér lofum þig, Kristur

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Vér lofum þig, Kristur, sem kemur og ert meðal þinna,
vér tilbiðjum undrið að oss viltu muna og finna.

2 Og allt það sem spillti vor uppreisn gegn þér viltu bæta
því dauðinn í oss þínu upprisulífi skal mæta.

3 Sem þjónn vor og bróðir hér ertu og allt viltu gefa
oss börnunum snauðum og blindum af vantrú og efa.

4 Það líf sem oss týndist þín trúfesti aftur oss gefur,
þú gefur þig sjálfan við borðið sem blessað þú hefur.

5 Og vér, sem þig svikum, í lofsöng og fögnuði færumst
frá dauða til lífs er vér þiggjum og neytum og nærumst.

6 Vér tilbiðjum undrið að oss viltu muna og finna,
vér lofum þig, Kristur, sem kemur og ert meðal þinna.

  • TSvein Ellingsen 1976 – Sigurbjörn Einarsson 1984 – Vb. 1991
    Vår lovsang skal møte deg, Kristus
  • LHarald Gullichsen 1976 – Vb. 1991
    Vår lovsang skal møte deg, Kristus
  • Eldra númer 587
  • Eldra númer útskýring T+L