Sálmabók

300. Kristur veitist allur öllum

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Kristur veitist allur öllum
ævinlega þá vér föllum
fram við blessað borðið hans.
Kristur eyðist ei né þrýtur,
alla blessun hver einn hlýtur
þó að neyti þúsund manns.

2 Allir sem til Guðs borðs ganga
gæti' að halda rannsókn stranga
högum sálar sinnar á.
Krists með trú og tárum leiti
til þess sér til lífs þeir neyti
og hans friður faðmi þá.

  • TThomas Aquinas 13. öld – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
    Lauda Sion Salvatorem
  • LJohann Löhner 1691 – Leipzig 1793 – Ssb. 1936
    Alles ist an Gottes segen
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 229
  • Eldra númer útskýring T+L