Sálmabók
31. Í Betlehem er barn oss fætt
1 Í Betlehem er :,: barn oss fætt. :,:
Því fagni gjörvöll Adams ætt.
Hallelúja, hallelúja.
2 Það barn oss fæddi :,: fátæk mær. :,:
Hann er þó dýrðar Drottinn skær.
Hallelúja, hallelúja.
3 Hann var í jötu :,: lagður lágt :,:
en ríkir þó á himnum hátt.
Hallelúja, hallelúja.
4 Hann vegsömuðu :,: vitringar, :,:
hann tigna himins herskarar.
Hallelúja, hallelúja.
5 Þeir boða frelsi' og :,: frið á jörð :,:
og blessun Drottins barnahjörð.
Hallelúja, hallelúja.
6 Vér undir tökum :,: englasöng :,:
og nú finnst oss ei nóttin löng.
Hallelúja, hallelúja.
7 Vér fögnum komu :,: frelsarans, :,:
vér erum systkin orðin hans.
Hallelúja, hallelúja.
8 Hvert fátækt hreysi :,: höll nú er :,:
því Guð er sjálfur gestur hér.
Hallelúja, hallelúja.
9 Í myrkrum ljómar :,: lífsins sól. :,:
Þér, Guð, sé lof fyrir gleðileg jól.
Hallelúja, hallelúja.
- TLatn. sálmur frá 14. öld – Sb. 1589 – Valdimar Briem – Sb. 1886Et barn er født i Betlehem
- LÞýskt lag um 1600 – Andreas P. Berggreen 1849 – PG 1878Et barn er født i Betlehem
- Eldra númer 73
- Eldra númer útskýring T+L
- Biblíutilvísun Lúk. 2.1–14