Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ó, blíði Jesú, blessa þú
það barn er vér þér færum nú,
tak það í faðm og blítt það ber
með börnum Guðs á örmum þér.
2 Ef á því hér að auðnast líf
því undir þínum vængjum hlíf
og engla þinna láttu lið
það leiða' og gæta slysum við.
3 Ó, gef það vaxi' í visku' og náð
og verði þitt í lengd og bráð
og lifi svo í heimi hér
að himna fái dýrð með þér.
- TÓlafur Guðmundsson – Sb. 1589 – Valdimar Briem – Sb. 1886
- LCarl C.N. Balle 1850 – BÞ 1903Det kimer nu til julefest
- Eldra númer 252
- Eldra númer útskýring T+L