Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Æskunnar ljómi, undrun og kraftur,
ólgan í blóðinu, rauðasta rós.
:,: Nær en við höldum er heimsins ljós. :,:
2 Leitandi hugur, lífið sem bíður,
löngun til afreka, verðskuldað hrós.
:,: Nær en við höldum er heimsins ljós. :,:
3 Stöndum við heitið, staðföst í trúnni,
stefnunni fylgjum til lands eða sjós.
:,: Nær en við höldum er heimsins ljós. :,:
4 Fermingardagur, framtíðin bjarta,
fljótið sem streymir í ævinnar ós.
:,: Nær en við höldum er heimsins ljós. :,:
- TAðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2010
- LSigurður Flosason 2010