Sálmabók

365a. Ó, himnafaðir, hjá oss ver

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Ó, himnafaðir, hjá oss ver
og hjónin ungu tak að þér
er vinna glöð sín heilög heit,
þeim hjálp og styrk og gæfu veit.

2 Hér tengjast sálir, hendi hönd,
ó, helga þeirra tryggðabönd.
Gef þeim að starfa´ í elsku eitt,
þú einn þá blessun getur veitt.

3 Og bústað þeirra blessa þú,
ó, besti faðir, auk þeim trú.
Þinn andi vaki yfir þeim
um alla tíma´ og leiði heim.

4 Og þú sem átt á öllu ráð
og ómælt veitir þína náð,
lát helgast sérhvert hjónaband
til heilla fyrir þjóð og land.

  • TJohan L. Runeberg, 1857 – Sigurjón Guðjónsson – Sb. 1972
    Gud se i nåd til dessa två
  • LSteingrímur Þórhallsson 2012
  • Eldra númer 262
  • Eldra númer útskýring T