Sálmabók
373b. Allt eins og blómstrið eina
Um dauðans óvissan tíma
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði –
líf mannlegt endar skjótt.
13 Ég lifi´ í Jesú nafni,
í Jesú nafni eg dey,
þó heilsa og líf mér hafni
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti eg segi:
Kom þú sæll þá þú vilt.
- THallgrímur Pétursson 1661 – Sb. 1671Som fagre blomen ydder
- LGunnar Þórðarson 2013
- Eldra númer 273
- Eldra númer útskýring T