Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Jarðvist á enda,
lífsgöngu lokið,
ljósið þitt slokknað,
fölnuð brá.
Virðing og þökk,
vegferðin öll
vel í huga geymd.
2 Hljóðnuð er röddin,
hæglátur blærinn,
helguð þín brottför
Drottins náð.
Virðing og þökk ...
3 Syrgjendur kveðja,
söknuðinn finna,
sárasta harminn,
tregans tár.
Virðing og þökk ...
4 Faðmi þig ljósið,
friðarins engill
fylgi þér nú
á æðra stig.
Virðing og þökk ...
- TAðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2010 – Vb. 2013
- LSigurður Flosason 2010 – Vb. 2013
- Eldra númer 899
- Eldra númer útskýring T+L