Sálmabók

379. Nú ertu leidd, mín ljúfa

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga' og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri' en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.

2 Drottins í dýrðarhendi,
Drottins barn, sofðu vært,
hann sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andar friði
ætíð sæl lifðu nú.

  • THallgrímur Pétursson 1645–1649 – Sb. 1945
  • LTryggvi M. Baldvinsson 2017
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 280
  • Eldra númer útskýring T