Sálmabók
380. Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja,
lögð í jörð með himnaföður vilja,
leyst frá lífi nauða,
ljúf og björt í dauða
lést þú eftir litla rúmið auða.
2 Enginn þýðir, hel, þitt helgiletur.
Hvar er vorið, spyrja börn um vetur.
Dagur njólu dylur,
daginn nóttin hylur,
lífið oss frá eilífðinni skilur.
3 Því til hans sem börnin ungu blessar,
biðjum hann að lesa rúnir þessar,
heyrum hvað hann kenndi:
Hér þótt lífið endi
rís það upp í Drottins dýrðarhendi.
4 Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða,
lof sé Guði, búin ertu' að stríða.
Upp til sælu sala
saklaust barn án dvala.
Lærðu ung við engla Guðs að tala.
- TMatthías Jochumsson 1880 – Sb. 1945
- LSigfús Einarsson – Ssb. 1936Enginn þýðir, hel, þitt helgiletur
- Eldra númer 282
- Eldra númer útskýring T+L