Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Yndislega ættarjörð,
ástarkveðju heyr þú mína,
þakkarklökkva kveðjugjörð,
kveð ég líf þitt, móðir jörð.
Móðir, bæði mild og hörð,
mig þú tak í arma þína.
Yndislega ættarjörð,
ástarkveðju heyr þú mína.
2 Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður,
nú er lífsins dagur dvín,
dýra, kæra fóstra mín,
búðu' um mig við brjóstin þín,
bý ég þar um eilífð glaður.
Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður.
3 Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda' í hendur.
Foldin geymi fjötur sinn.
Faðir lífsins, Drottinn minn,
hjálpi mér í himin þinn
helgur máttur, veikum sendur.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda' í hendur.
- TSigurður Jónsson frá Arnarvatni – Sb. 1945Sveitin mín
- LBjarni Þorsteinsson 1901 – Svb. 1991Sveitin mín
- Eldra númer 435
- Eldra númer útskýring T+L