Sálmabók

384. Í friði látinn hvíli hér

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Í friði látinn hvíli hér,
nú heim frá leiði göngum vér.
Ó, búum einnig oss af stað
því óðum líður stundin að.

2 Svo veri dauðinn velkominn,
vér vitum, Jesú, dauði þinn
frá dauðans valdi leysti lýð,
þér lof og dýrð sé fyrr og síð.

  • TMichael Weisse 1531 – Martin Luther 1540 – ME 1555 – Sb. 1589 – Magnús Stephensen – Sb. 1801 – Valdimar Briem – Sb. 1886
    Nun lasst uns den Leib begraben
  • LWittenberg 1544 – Gr. 1594
    Nun lasst uns den Leib begraben
  • Eldra númer 275
  • Eldra númer útskýring T+L