Sálmabók
386. Lofið Guð, ó, lýðir, göfgið hann
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Lofið Guð, ó, lýðir, göfgið hann,
heiðrið Guð, ó, heiðrið föður þann,
tignið Drottins tignarnafn, hans tign ei breytist,
miklið Drottins náðarnafn, hans náð ei þreytist,
mildin hans við menn ei þrýtur,
miskunn hans til aumra lítur,
ástin hans ei enda hlýtur,
eilíf tryggð hans aldrei bregst.
Öll hans stjórn og umsjá ber um elsku vottinn.
Lofi nafn hans lýður hver, já, lofið Drottin.
- TJón Þorsteinsson – Sb. 1671 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
- LPétur Guðjohnsen – PG 1861
- Eldra númer 24
- Eldra númer útskýring T+L