Sálmabók

404. Guð sem skapar líf og ljós

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Guð sem skapar líf og ljós
lætur vakna hverja rós.
Hann er Guð sem gefur þér
góðan dag og einnig mér.

2 Myrkrið hrekur hann á braut,
hjálpar vel í sorg og þraut.
Hvert sem leiðin liggur þín
lýsir hann þér heim til sín.

3 Láttu, Drottinn, lýsa enn
ljósið þitt svo allir menn
hér á jörðu, hvar sem er,
heiðri þig og fylgi þér.

  • TKristján Valur Ingólfsson 1994 – Sb. 1997
  • LHjálmar H. Ragnarsson 1995 – Sb. 1997
  • Eldra númer 702
  • Eldra númer útskýring T+L