Sálmabók

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Endar nú dagur en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.

2 Verkin mín öll og vinnulag
velþóknan hjá þér finni
en vonskan sú sem vann ég í dag
veri gleymd miskunn þinni.

3 Þó augun sofni aftur hér
í þér mín sálin vaki.
Guðs son, Jesú, haf gát á mér,
geym mín svo ekkert saki.

4 Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.

  • TSigurður Jónsson í Presthólum – Sb. 1772
  • LHörður Áskelsson 1999
    Endar nú dagur
  • Eldra númer 465
  • Eldra númer útskýring T+L