Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum
í líknarmildum föðurörmum þínum
og hvíli sætt þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu föðurhjarta.
2 Æ, tak nú, Drottinn, föður og móður mína
í mildiríka náðarverndan þína
og ættlið mitt og ættjörð virstu geyma
og engu þínu minnsta barni gleyma.
3 Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga
en sér í lagi þau sem tárin lauga
og sýndu miskunn öllu því sem andar
en einkum því sem böl og voði grandar.
4 Þín líknarásján lýsi dimmum heimi,
þitt ljósið blessað gef í nótt mig dreymi.
Í Jesú nafni vil ég væran sofa
og vakna snemma þína dýrð að lofa.
- TMatthías Jochumsson – Sb. 1886
- LEgil Hovland 1980En dag skal Herrens skaperdrømmer møte
- Eldra númer 509
- Eldra númer útskýring T