Sálmabók

466. Þitt lof, ó, Drottinn vor

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Þitt lof, ó, Drottinn vor, himnarnir hljóma,
þitt heilagt nafnið prísa ber.
Vor jörð skal söngvana enduróma:
Þú alheims stýrir, lof sé þér.

2 Þú reistir hvelfingar himinsins heima,
þín hönd gaf ljósið skærri sól.
Þú ekur sigrandi gegnum geima
á geislans braut að ysta pól.

  • TChristian F. Gellert, 1757 – Þorsteinn Gíslason – Vb. 1933
    Die Himmel rühmen des Ewigen Ehre
  • LJohann J. Quantz, 1760 – Ssb. 1936
    Die Himmel rühmen des Ewigen Ehre
  • Eldra númer 19
  • Eldra númer útskýring T+L