Sálmabók

467b. Smávinir fagrir

Úr Hulduljóðum

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Smávinir fagrir, foldarskart,
fífill í haga, rauð og blá
brekkusóley! Við mættum margt
muna hvort öðru að segja frá.

2 Faðir og vinur alls sem er!
Annastu þennan græna reit,
blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.

3 Vesalings sóley! Sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt,
dreymi þig ljósið, sofðu rótt.

  • TJónas Hallgrímsson um 1840
  • LJón Nordal 1940