Sálmabók

477. Alls staðar finn ég þig

Guð

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Alls staðar finn ég þig,
yndisleg návist þín
umvefur mig sem ljúfur sumarvindur.
Jörðin gengur sinn veg
gegnum myrkur, geimryk og glóandi sindur.
:,: Hún snýr sér dansandi' í hring
en dýrð þín er, Drottinn,
uppi' yfir mér og allt um kring. :,:

  • TVilborg Dagbjartsdóttir 2007 – Vb. 2013
  • LPétur Þór Benediktsson 2007 – Vb. 2013
  • Eldra númer 838
  • Eldra númer útskýring T+L