Sálmabók
484. Ó, Herra Guð, þér heiður ber
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ó, Herra Guð, þér heiður ber,
mitt hjarta lofgjörð flytur þér.
Þú annast minn æ hefur hag,
þín hönd mig geymdi nótt og dag.
2 Þá réttum vegi veik ég frá
og villtist lastabrautir á
þín föðurgæska guðdómleg
mér greiddi' að nýju réttan veg.
3 Þá huggun þráði hjarta mitt
þú huldir stundum auglit þitt.
Þó lést þú aldrei einan mig
og aftur náð þín birti sig.
4 Ég alla blessun þakka þér
sem þinnar líknar vottur er
en einkum glaður þakka' eg það
að þú sem barn mig tókst þér að.
- TChristian F. Gellert, 1757 – Sb. 1801 – Valdimar Briem – Sb. 1886Du bist´s, dem Ruhm und Ehre gebühret
- LChristoph E.F. Weyse 1817 – Sb. 1871Naar vi i største nød mon staae
- Eldra númer 16a
- Eldra númer útskýring T+L