Sálmabók
486. Þurfamaður ert þú, mín sál
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Þurfamaður ert þú, mín sál,
þiggur af Drottni sérhvert mál,
fæðu þína og fóstrið allt,
fyrir það honum þakka skalt.
2 Guðs sonur, sá sem sannleiks ráð
sjálfur átti á himni' og láð,
þáði sitt brauð með þakkargjörð
þegar hann umgekkst hér á jörð.
- THallgrímur Pétursson Ps. 1
- LGenf 1545 – Sb. 1589 – PG 1861Wenn wir in höchsten Nöthen sein
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 487
- Eldra númer útskýring T