Sálmabók
496a. Gegnum Jesú helgast hjarta
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Gegnum Jesú helgast hjarta
í himininn upp ég líta má,
Guðs míns ástar birtu bjarta
bæði fæ ég að reyna' og sjá.
Hryggðarmyrkrið sorgar svarta
sálu minni hverfur þá.
2 Hjartans innstu æðar mínar
elski, lofi, prísi þig,
en hjartablóð og benjar þínar
blessi, hressi, græði mig.
Hjartans þýðar þakkir fínar
þér sé, gæskan eilíflig.
- THallgrímur Pétursson Ps. 48
- LJohn F. Wade 1743 – Luxemburg 1768 – Sb. 1871ST. THOMAS (HOLYWOOD) / PANGE LINGUA
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 47
- Eldra númer útskýring T+L