Sálmabók
499. Heyrðu mig, hjartakær Jesú
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Heyrðu mig, hjartakær Jesú,
hlusta' á mitt bænamál.
Hjálpa mér að þóknast þér,
þjóna af lífi' og sál.
2 Læt ég þig leiða mig, Jesú,
lífsins um hálan stig.
Náðin þín mun nægja mér,
nóg er að trúa' á þig.
3 Með þér er gott hér að ganga
götuna fram á leið,
fela sig inni' í faðmi þér
fallvölt um æviskeið.
4 Svo þegar leið minni lýkur,
legg upp í hinsta sinn,
hvað þá verður mér hvíldin góð,
Kristur, við hástól þinn.
- THugrún (Filippía Kristjánsdóttir) – Vb. 2013
- LIlkka Kuusisto 1978 – Vb. 2013Kosketa minua Henki
- Eldra númer 857
- Eldra númer útskýring T+L