Sálmabók
500. Athvarf mitt þú ert, ó, Jesú
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Athvarf mitt þú ert, ó, Jesú,
einum treysti' eg þér.
Líf og frelsi, ljós og gleði
ljær þú mér.
2 Lát mig finna fyrirgefning
fætur þína við.
Þinni guðdóms gæsku' eg treysti,
gef mér frið.
3 Þú mig leiðir, þú mig styður,
þér ég fylgi' í trú.
Allt sem hjartað heitast þráir
hefur þú.
4 Vernda gang minn, góði Jesú,
gegnum lífsins stríð.
Aðeins þér ég einum treysti
ár og síð.
- TFrances R. Havergal 1874 – Sigurbjörn Sveinsson, 1931 – Vb. 2013I Am Trusting Thee, Lord Jesus
- LEthelbert W. Bullinger 1874 – Vb. 2013BULLINGER / I Am Trusting Thee, Lord Jesus
- Eldra númer 859
- Eldra númer útskýring T+L