Sálmabók
502a. Ég gleðst af því ég Guðs son á
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ég gleðst af því ég Guðs son á,
hann gaf mér sig og allt um leið
er bæta fátækt mína má
og minni létta sálarneyð.
2 Ég gleðst af því ég Guðs son á.
Hvað gjört fær mér nú heimurinn?
Minn ástvin Jesús er mér hjá
með allan mátt og kærleik sinn.
3 Ég gleðst af því ég Guðs son á,
nú grandað fær ei dauðinn mér
því brodd hans hefur brotið sá
sem bróðir minn og vinur er.
4 Ég gleðst af því ég Guðs son á,
hann gefa vill mér himin sinn
og þangað leiða þrautum frá
í þreyða friðinn anda minn.
5 Ég gleðst af því ég Guðs son á,
ég gleðst, ó, Jesú minn, í þér
og vil þér aldrei víkja frá
en vak þú, Drottinn, yfir mér.
- TBertel Ægidius 1717 – Þorvaldur Böðvarsson – Sb. 1801 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886 – 5. v. endurkv. Sigurbjörn Einarsson 1969Jeg er udi Jesu glad
- LSouthern Harmony 1835PROSPECT
- Eldra númer 48
- Eldra númer útskýring T