Sálmabók

506. Þú kemur, Jesús Kristur, inn

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Þú kemur, Jesús Kristur, inn
og kveikir ljósið bjart.
Þá hverfur allur ótti minn
og efamyrkrið svart.

2 Í næturkyrrð þú kemur nú,
eins komstu fyrsta sinn
er gafstu hrelldu hjarta trú
á helgan kærleik þinn.

3 Þú kemur, gengin gleymist þraut
og gróa hjartasár.
Með þér ég stenst á brattri braut
og brosi gegnum tár.

4 Þú kemur, Jesús kær, um leið
fer kvíði' úr hjarta mér
því allt mitt hulda æviskeið
þá er í hendi þér.

5 En kærust verður koma þín
er kvöldar hinsta sinn.
Þú leggur aftur augun mín
og opnar himin þinn.

  • TLilja S. Kristjánsdóttir, 1982 – Vb. 2013
  • LJónatan Ólafsson, 1982 – Vb. 2013
  • Eldra númer 858
  • Eldra númer útskýring T+L