Sálmabók

508. Ég tigna kærleiks kraftinn hljóða

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Ég tigna kærleiks kraftinn hljóða,
Kristur, sem birtist oss í þér.
Þú hefur föðurhjartað góða,
himnanna ríki, opnað mér.
Ég tilbið undur elsku þinnar,
upphaf og takmark veru minnar.

2 Mitt líf í helgum huga þínum
hefur þú líknarstöfum skráð,
og allt sem býr í barmi mínum
bera skal vitni þinni náð
svo aftur lýsi elskan bjarta,
endurskin þitt, frá lind míns hjarta.

3 Ég dýrka helga hátign þína,
himneski vinur, Drottinn minn.
Lát trú og verk og vitund mína
vegsama kærleiks máttinn þinn
og mig um alla eilífð bera
anda þíns mót og hjá þér vera.

  • TGerhard Tersteegen 1751, 1757 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
    Ich bete an die Macht der Liebe
  • LDimitri Bortnianskij 1822 – Vb. 1946
    Ich bete an die Macht der Liebe
  • Eldra númer 52
  • Eldra númer útskýring T+L