Sálmabók

516a. Son Guðs ertu með sanni

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Son Guðs ertu með sanni,
sonur Guðs, Jesú minn,
son Guðs, syndugum manni
sonararf skenktir þinn,
son Guðs einn eingetinn,
syni Guðs syngi glaður
sérhver lifandi maður
heiður í hvert eitt sinn.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 25
  • LHamborg 1598 – Gr. 1691 – PG 1861
    Aus meines Herzen Grunde
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 56
  • Eldra númer útskýring T+L