Sálmabók
517. Sannleikans andi
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Sannleikans andi,
lát sannleikans ljós þitt oss skína,
send oss í myrkrunum
himnesku geislana þína,
sannleikans sól,
sjálfs Guðs að hátignarstól
lát þú oss leiðina sýna.
2 Kærleikans andi,
hér kom með þinn sólaryl blíða,
kveik þú upp eld þann
er hjartnanna frost megi þíða.
Breið yfir byggð
bræðralag, vinskap og tryggð,
lát það vorn lífsferil prýða.
3 Friðarins andi,
á friðarins brautir oss leiddu,
friða þú hjörtun
og sundrunga stormunum eyddu,
fær oss þinn frið
föður vorn himneskan við,
heimför til hans loks oss greiddu.
4 Heilagur andi,
þér heilagt bygg musteri' á jörðu,
heilagan söfnuð
og flekklausan kristnina gjörðu.
Heilagra hnoss
hlotnast um síðir lát oss
Drottins með heilagra hjörðu.
- TValdimar Briem – Sb. 1886
- LStralsund 1665 – Halle 1741 – PG 1861Lobe den Herren, den mächtigen König
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 331
- Eldra númer útskýring T+L