Sálmabók
518. Heilagur andi er til sanns
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Heilagur andi er til sanns
eitt með föður og syni hans,
þó vill hann búa’ í brjósti manns,
bústað þar gjöra skaparans.
2 Drottinn, gjör þú vort sinni’ og sál
samhljóða við þitt helga mál,
mengaða hvöt og heimsins tál
hreinsi þíns anda kærleiksbál.
3 Leið þú oss, Guð, og lát oss sjá
ljós þitt á jörð og himnum á.
Eilífar þakkir þér skal tjá,
þríeina guðdómstignin há.
- TAurelius Ambrosius? – Sb. 1589 – Sigurbjörn Einarsson 1998 – Vb. 2013Nunc sancte nobis spiritus
- LKempten um 1000 – Erfurt 1524 – Sb. 1589Komm, Gott Schöpfer, Heiliger Geist
- Eldra númer 931
- Eldra númer útskýring T