Sálmabók

524. Heyri eg um þig, minn Herra, rætt

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Heyri' eg um þig, minn Herra, rætt
í hjálpræðisorði þínu,
allt sýnist mér þá búið og bætt
bölið í hjarta mínu.
Í sakramentinu sé ég þig
svo sem í líking skærri
með náð mér nærri.
Ó, hvað gleður sú ásýnd mig,
engin finnst huggun stærri.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 21
  • LHagenau um 1526 – Wittenberg 1529 – Sb. 1589
    Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 230
  • Eldra númer útskýring T+L