Sálmabók

528. Í orði Guðs

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Í orði Guðs var allt í fyrstu mótað,
því orði sem er skráð í lífsins bók,
óplægð akurmold, ævi þín og starf,
eldur, vatn og loft – hvaðeina sem þarf
til að blómgist blessað líf á jörð.

2 Í orði Guðs er aflið sterka falið,
því orði sem er skráð í lífsins bók,
gleði þín og sorg, gömul eða ný,
geislar sólarinnar, dimmust næturský
til að blómgist blessað líf á jörð.

  • TAðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2009 – Vb. 2013
  • LSigurður Flosason 2009 – Vb. 2013
  • Eldra númer 812
  • Eldra númer útskýring T+L