Sálmabók

532. Ó, Jesú, bróðir besti

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Ó, Jesú, bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.

2 Mér gott barn gef að vera
og góðan ávöxt bera
en forðast allt hið illa
svo ei mér nái' að spilla.

3 Það ætíð sé mín iðja
að elska þig og biðja,
þín lífsins orð að læra
og lofgjörð þér að færa.

4 Þín umsjón æ mér hlífi
í öllu mínu lífi,
þín líknarhönd mig leiði
og lífsins veginn greiði.

5 Mig styrk í stríði nauða,
æ, styrk þú mig í dauða.
Þitt lífsins ljósið bjarta
þá ljómi' í mínu hjarta.

6 Með blíðum barnarómi
mitt bænakvak svo hljómi.
Þitt gott barn gef ég veri
og góðan ávöxt beri.

  • TPáll Jónsson – Sb. 1886
  • LAndreas P. Berggreen 1844 – JH 1885
    Et aar vi saae hensvinde
  • Eldra númer 503
  • Eldra númer útskýring T+L