Sálmabók
535. Í bljúgri bæn
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Í bljúgri bæn og þökk til þín
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
2 Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer
og man svo sjaldan eftir þér.
3 Sú ein er bæn í brjósti mér
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn
að verðir þú æ Drottinn minn.
- TPétur Þórarinsson 1974 – Vb. 1991
- LAmerískt þjóðlag – Vb. 1991Banks of the Ohio
- Eldra númer 551
- Eldra númer útskýring T+L