Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið
til hjálpar hverjum hal og drós
sem hefur villst af leið.
2 Ó, faðir, gjör mig blómstur blítt
sem brosir öllum mót
og kvíðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
3 Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag
sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag
en svæfir storm og bál.
4 Ó, faðir, gjör mig styrkan staf
að styðja hvern sem þarf
uns allt það pund sem Guð mér gaf
ég gef sem bróðurarf.
5 Ó, faðir, gjör mig sigursálm,
eitt signað trúarlag
sem afli blæs í brotinn hálm
og breytir nótt í dag.
- TMatilda B. Betham-Edwards, 1873 – Matthías Jochumsson, 1901 – Vb. 1933God Make My Life a Little Light
- LJónas Tómasson, 1936 – Vb. 1946Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
- Eldra númer 507
- Eldra númer útskýring T+L