Sálmabók

539. Barn þitt vil ég vera

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Barn þitt vil ég vera,
víkja þér ei frá.
Blítt þér vil ég bera
það besta sem ég á,
elsku mína alla.
Innst úr hjarta mér
andinn hrópar upp til þín:
„Abba, faðir!“
Greitt það aldrei get ég
sem gafstu fyrir mig,
allt þitt líf og ást og trú.
Ég elska þig.

  • TGraham Kendrick 1985 – Þorvaldur Halldórsson 1987 – Vb. 2013
    We are here to praise You
  • LGraham Kendrick 1985 – Vb. 2013
    WE ARE HERE TO PRAISE YOU
  • Eldra númer 907
  • Eldra númer útskýring T+L