Sálmabók

550a. Ó, undranáð sem aldrei bregst

hymn notes

1 Ó, undranáð sem aldrei bregst,
sem auman leystir mig.
Ég blindur var en blessun þín
mér barg er fann ég þig.

2 Mitt hjarta þekkti óttans ógn,
þú eyddir þeirri kennd.
Ó, blessuð stund er birtust mér
þín boð af Guði send.

3 Mitt líf var sekt og syndum hrjáð,
af slíku hafði' eg nóg.
Þín miskunn, Drottinn, mikil var,
af mildi hjartað vó.

4 Ég veit að Guð mun gefa mér
sinn guðdómlega styrk.
Hans náðarljós mér lýsir hér
ef leiðin verður myrk.

  • TJohn Newton 1779 – Jóhanna G. Erlingsson 2002
    Amazing Grace
  • LColumbian Harmony 1829 – Sb. 1997
    NEW BRITAIN / Amazing Grace