Sálmabók

567. Það skín ekkert ljós

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Það skín ekkert ljós inn í skammdegismyrkrið
og skuggann sem býr mér við hlið.
Ég leita en finn enga, finn enga leið
:,: fyrir ljósið mitt. :,:
:,: Jesús, kom þú með þitt. :,:

2 Víst þekki ég ylinn sem sólin þín sendir
en samt finnst mér alls staðar kalt.
Ég kalla en kemst ekki, kemst ekki að
:,: með kærleika minn. :,:
:,: Kristur, kom þú með þinn. :,:

3 Þú kemur í myrkrið og kuldann, Drottinn,
og kveikir þar ljós þitt og yl.
Þú finnur og elskar það, elskar það allt
:,: og með aumum býrð. :,:
:,: Drottinn, kom þú með dýrð. :,:

  • TKristján Valur Ingólfsson 1993 – Sb. 1997
  • LHjálmar H. Ragnarsson 1995 – Sb. 1997
  • Eldra númer 708
  • Eldra númer útskýring T+L