Sálmabók

582. Drottinn er minn hirðir

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn noteshymn notes

Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um réttan veg fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal
óttast ég ekkert illt því þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.

  • TSálm. 23
  • LMargrét Scheving 1983 – Vb. 2013
  • Eldra númer 825
  • Eldra númer útskýring T+L
  • Biblíutilvísun Sálm. 23