Sálmabók
583. Frelsarinn góði
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Frelsarinn góði, ljós mitt og líf,
lífsins í stormum vertu mér hlíf,
láttu þitt auglit lýsa' yfir mig,
láttu mig aldrei skiljast við þig.
2 Gjörðu mig fúsan, frelsari minn,
fúsari' að ganga krossferil þinn,
fúsari' að vinna verk fyrir þig.
Vinurinn eini, bænheyrðu mig.
- TBjarni Jónsson, 1922
- LFredrik A. Ekström, 1860Jesus för världen givit sitt liv