Sálmabók
588. Þú heyrir spurt: Er hjálp að fá
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Þú heyrir spurt: Er hjálp að fá
og hvar er ljós og dag að sjá?
Ef hjartað týnir sjálfu sér
hvar sé ég leið, hver bjargar mér?
Þú heyrir svar ef hlustar þú
af hjartans þörf, í barnsins trú
því Kristur Jesús þekkir þig
og þú ert hans, hann gaf þér sig.
2 Hve margur sár og meiddur spyr
við myrkvuð sund og luktar dyr.
En hlusta nú, þú heyrir svar
og heilög miskunn talar þar.
Þú heyrir svar ...
3 Já, Kristur segir: Kom til mín,
ég kominn er að vitja þín
og lækna þig og lýsa þér
til lífs og sigurs: Fylg þú mér.
Þú heyrir svar ...
- TSigurbjörn Einarsson 1977 – Sb. 1997
- LSiguróli Geirsson 1977 – Sb. 1997
- Eldra númer 709
- Eldra númer útskýring T+L