Sálmabók

589. Mitt líf vil ég fela þér

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Mitt líf vil ég fela þér, frelsarinn kæri,
í fylkingu þinni mig langar að vera.
Þú bauðst mér að koma, ég kaus það og sagði:
Ég fylgi þér, Jesús, ég fylgi þér.

2 Ef sækir mig efi og ótryggð ég sýni,
af einlægni bið ég, í hönd mína taktu
og hjartað gjör auðmjúkt svo aftur ég segi:
Ég fylgi þér, Jesús, ég fylgi þér.

3 Þótt lifi' ég til skiptis í ljósi og myrkri
þú leiðir mig, Jesús, því skelfist ég eigi.
Í sorg og í gleði ég segi af hjarta:
Ég fylgi þér, Jesús, ég fylgi þér.

  • TGöte Strandsjö 1975 - Trygve Bjerkrheim 1981 - Lilja S. Kristjánsdóttir, 2003
    Mitt liv vil jeg leve
  • LGöte Strandsjö 1975
    Mitt liv vil jeg leve