Sálmabók

601. Vér fetum brautu bjarta

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Vér fetum brautu bjarta
með bæn og söng í hjarta
til þín sem Herra heitir
og hjálp og styrk oss veitir.

2 En þangað leiðin liggur
svo ljós en margur hyggur
þar tóm þótt takmark eygi
og týnist af þeim vegi.

3 Því kom í krafti sendur
með kærleiks líknarhendur,
Guðs son, að græða, líkna,
að gefa líf og sýkna.

4 Vort líf og lán þú gefur,
oss líknarörmum vefur.
Þér látum lofgjörð óma
sem leystir oss úr dróma.

5 Nú forða fári illu
og fyrirgef oss villu
við loka lúðurhljóminn
að lausnar fáum dóminn.

  • TKristján Valur Ingólfsson 1974 – Vb. 1991
  • LSelnecker 1587 – Sb. 1751
    Nun lasst uns Gott dem Herren
  • Sálmar með sama lagi
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 545b
  • Eldra númer útskýring T+L