Sálmabók

611. Þér lof vil ég ljóða

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Þér lof vil ég ljóða,
þú, lausnarinn þjóða
er gafst allt hið góða
af gæsku og náð.
Þá miskunn og mildi
ég miklaði' ei sem skyldi
þótt vegsama' æ ég vildi
þá visku og dáð.

2 Er líkn þína lít ég
þá lofa þig hlýt ég
því náðar æ nýt ég
sem ný er hvern dag.
Nú heyri ég hljóma
þá helgu leyndardóma
sem englaraddir óma
við eilífðarlag:

3 „Sjá, lof allra lýða
og landa og tíða
þér ber, lamb Guðs blíða,
frá blóðdrifnum stig.
Frá djöfli og dauða,
frá dómi syndanauða
þú leystir lýði snauða,
því lofum vér þig.“

  • THollenskur höf. ók. – Theodore Baker um 1900 – Bjarni Eyjólfsson, 1959 – Vb. 1991
    We gather together
  • LHollenskt lag – Valerius 1626 – Vb. 1991
    Wilt heden nu treden voor God, den Heere / KREMSER
  • Eldra númer 535
  • Eldra númer útskýring T+L