Sálmabók
614. Kirkjan er oss kristnum móðir
1 Kirkjan er oss kristnum móðir,
kristinn sérhver er vor bróðir,
Guðs og Krists vér erum ætt
allir sem hún hefur fætt.
2 Móðir sú til frelsis fæðir,
frjálsra þegna rétti gæðir,
móðurþel til barna ber,
blítt þau tekur öll að sér.
3 Svo hún gjört oss frjálsa fái,
frjáls og hlýðin börn oss sjái,
frelsislærdóm frelsarans
flytur hún í nafni hans.
4 Hún vill aðeins laða' og leiða
lýð en ei með valdi neyða,
býður frelsi, boðar náð,
birtir himneskt líknarráð.
5 Börn sín vill hún Kristi klæða,
Krists með náðarbrauði fæða
að hún loksins fái fært
föðurnum hvert barn sitt kært.
6 Það er vinna vill þín kirkja
virstu, Guð, af náð að styrkja
að það beri ávöxt þann
er þá móður gleðja kann.
7 Hennar móðurhjarta kættu,
hennar móðursorgir bættu,
vorri móður vernd þú sýn,
vora móður sigri krýn.
- TMagnus B. Landstad um 1861 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886Kirken er til Moder kaaret
- LAndreas P. Berggreen 1852 – PG 1878Aldrig er jeg uden våde
- Eldra númer 286
- Eldra númer útskýring T+L