Sálmabók

62. Sjá, morgunstjarnan blikar blíð

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Sjá, morgunstjarnan blikar blíð
sem boðar náð og frelsi lýð
og sannleiksbirtu breiðir.
Þú blessun heims og harmabót,
þú heilög grein af Jesse rót
mig huggar, lífgar, leiðir.
Jesú, Jesú,
líknin manna, lífið sanna,
ljósið bjarta,
þér ég fagna, hnoss míns hjarta.

2 Þú dásöm perla, dýr og skær,
þú djásnið mannkyns, Jesú kær,
þú eilíf alheims gleði,
þú himinlilja' í heiminum,
þitt heilagt evangelíum
er svölun særðu geði.
Herra, Herra,
himneskt manna, hósíanna!
Hátign þinni
vegsemd, dýrð og lof ei linni.

  • TPhilipp Nicolai 1599 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
    Wie schön leuchtet der Morgenstern
  • LPhilipp Nicolai 1599 – Sb. 1619
    Wie schön leuchtet der Morgenstern
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 89a
  • Eldra númer útskýring T+L
  • Biblíutilvísun Opb. 22.16