Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Herra og Guð, ver þú heilsulind mín,
hverfi mér allt nema tilvera þín.
Hugsun mín daglangt og draumur um nótt
dvelji við auglit þitt kyrrsælt og rótt.
2 Orð Guðs í verki og viskunnar tré,
veit mér í náð þinni' að stöðugt ég sé
farvegur mildi er mýkir hvert stríð,
mynd í Guðs hugskoti' um eilífa tíð.
3 Konungur sólna, lát sigurinn þinn
sigra í elsku hvern veikleika minn.
Hjarta þitt, Kristur, við hjarta mér slær,
himneska ásjóna, Drottinn minn kær.
- TÍrskur sálmur frá 8. öld – Mary E. Byrne 1905 og Eleanor Hull 1912 ̶ Heimir Steinsson – Vb. 2013Be thou my Vision, O Lord of my heart
- LÍrskt þjóðlag – Sb. 1997SLANE / Be Thou My Vision, O Lord of My Heart
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 902
- Eldra númer útskýring T