Sálmabók

636. Ef ég í dag hef nokkurn sært

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Ef ég í dag hef nokkurn sært með synd,
ef ég hef varpað skugga' á Jesú mynd,
ef ég hef aðra tælt frá lífsins lind,
fyrirgef mér, Guð.

2 Ef orð mín hafa verið ill og ströng,
ef athöfn mín var köld og breytnin röng,
ef hugsun mín var hyggjusnauð og þröng,
fyrirgef mér, Guð.

3 Ef líf mitt hefur verið ljósi sneytt,
ef lamað hefi ég og aðra deytt,
ef ég í einhverju hef illa breytt,
fyrirgef mér, Guð.

  • TC. Maud Battersby, 1910 – Jón Hjörleifur Jónsson 1962
    An Evening Prayer / If I have wounded any soul today
  • LCharles H. Gabriel, 1911
    If I have wounded any soul today